Oktoberfest Mývatn Öl 2026
30. og 31. október 2026
Mývatn bierfest aftur!
Helgina 30. og 31. Október og verður októberfest Mývatn öl haldið í annað sinn á Sel-Hótel Mývatni.
Þessa helgi mun hótelið breytast í líflega og litríka lederhosen bjórhátíð þar sem bjórinn rennur, tónlistin ómar og gleðin ræður ríkjum. Þetta er sannkölluð bjórhátíð í anda Bæjaralands með einstöku íslensku ívafi. Fjölmörg brugghús víðsvegar af landinu mæta með úrval af sínum bestu handverksbjórum, allt frá klassískum lagerum til sérlega frumlegra og bragðmikilla brugga.
Dagskrá og helstu atriði
Föstudagur 31. október
Pizzahlaðborð
19:00 – 21:00
Nauðsynlegt er að bóka borð. Vinsamlegast pantið með því að senda tölvupóst á myvatn@myvatn.is.
Hefðbundin Oktoberfest tónlist
21:00 – 23:00
Njóttu ekta þýskrar og austurrískrar Oktoberfest-tónlistar í flutningi Tríó Akureyrar og Ellu Vala.
Ókeypis aðgangur – allir eru velkomnir!
Laugardagur, 1. nóvember
Smökkun á handverksbjórum
16:00 – 20:00
Smakkaðu fjölbreytt úrval af handverksbjór frá nokkrum af bestu brugghúsum landsins ásamt matarsmakki og ís.
Oktoberfest kvöldverðarhlaðborð
19:30 – 21:30
Ljúffengt hlaðborð innblásið af hefðbundinni þýskri Oktoberfest matargerð með íslensku ívafi.
Lifandi tónlist
21:00 – 23:00
Heimamaðurinn Stebbi Jak og Hafþór Valur með honum munu halda uppi veislunni.
Hátíðin heldur áfram fram á nótt!
Upplýsingar um hátíðina
Hótelið verður full skreytt í sönnum Oktoberfest-stíl.
Gestir eru hvattir til að klæðast hefðbundnum þýskum búningum — verðlaun verða veitt fyrir besta búninginn og því um að gera að vera með smá tvist!
Miðar
Miði á bjórsmökkun á laugardaginn
Innifalið:
Armband fyrir handverksbjórsmökkun frá 16:00 - 20:00.
Verð: 9.900kr
Laugardagspassi
Innifalið:
- Armband fyrir handverksbjórsmökkun frá 16:00 - 20:00.
- Oktoberfest kvöldverðarhlaðborð.
- Kvöldskemmtun.
Verð: 16.490kr
1 nótt, laugardagsnótt
Innifalið:
- 2x laugardagspassar.
- Gisting í tveggjamanna herbergi með morgunmat.
Verð: 54.900kr
2 nætur, föstudags og laugardagsnótt
Innifalið:
- 2x laugardagspassar.
- Gisting í tveggjamanna herbergi með morgunmat.
- Pizzahlaðborð fyrir tvo á föstudagskvöldinu.
Verð: 84.900kr
ATH: Ekki er hægt að bóka gistingu sérstaklega um hátíðarhelgina. Hótelherbergi eru aðeins í boði sem hluti af hátíðarpakka, sem innihalda bæði gistingu og aðgang að hátíðinni.
Hægt er að bóka pakka beint í gegnum vefsíðu Sel-Hótel Mývatns með því að nota hnappinn hér að neðan.
Ef þú vilt aðeins sækja hátíðina án gistingar, þá eru miðar fáanlegir í gegnum TIX.
Við hlökkum til að lyfta glasi með þér!
